Hvenær hefst þessi viðburður:
15. október 2014 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 201

Gunnhildur Sigurhansdóttir M.A. í kynjafræði, fjallar um baráttu Rauðsokka fyrir frjálsum fóstureyðingum og andstöðuna sem þær mættu, á fyrirlestri hjá MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Jafnréttisdaga sem eru nú haldnir sjötta árið í röð í Háskóla Íslands. Að þessu sinni hefst dagskrá mánudaginn 6. október og lýkur föstudaginn 17. október.