Hvenær hefst þessi viðburður:
15. október 2014 - 12:00 til 13:00
Nánari staðsetning:
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17, 2. hæð

Blindum og sjónskertum háskólastúdentum hefur fjölgað gríðarlega á sl. árum, og er málþingið skipulagt til þess að þeir aðilar sem veita blindum og sjónskertum háskólanemum þjónustu geti skipst á skoðunum við nemendur.
Erindi flytja Bergvin Oddsson formaður Blindrafélagsins og stjórnmálafræðingur, María Hauksdóttir guðfræðingur og nú nemandi í fötlunarfræðum, Elva Ellertsdóttir deildarstjóri Stjórnmálafræðideildar HÍ, og starfsmaður námsbókagerðar ÞÞM.
Opið fyrir fyrirspurnir að loknum erindum, og er fundurinn á vegum Blindrafélagsins í samstarfi við SHÍ.
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17, 2. hæð
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Jafnréttisdaga sem eru nú haldnir sjötta árið í röð í Háskóla Íslands. Að þessu sinni hefst dagskrá mánudaginn 6. október og lýkur föstudaginn 17. október.