
Málstofa Lífvísindaseturs verður haldin fimmtudaginn 16. október kl. 12:00-12:40 í stofu 343 í Læknagarði.
Dr. Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir kennslustjóri framhaldsnáms Læknadeildar Háskóla Íslands mun fjalla um Yersinia ruckeri sýkingu í þorski, Gadus morhua (L.): Rannsókn á sýkjandi bakteríustofni og hýsilviðbrögðum.
Ágrip: Sýking Gram neikvæðu bakteríunnar Yersinia ruckeri veldur rauðmunnaveiki hjá laxfiskum og ýmsum fleiri tegundum ferskvatnsfiska um allan heim, en faraldri í þorski hefur ekki áður verið lýst. Nokkrar sermisgerðir Y. ruckeri eru þekktar, en sýkingar hafa einkum verið tengdar sermisgerð O1.
Faraldur af rauðmunnaveiki kom upp í eldisþorski í kjölfar bólusetningar á tilraunaeldisstöð fyrir sjávarfisk á Íslandi. Í þessari rannsókn var sjúkdómseinkennum, ónæmisviðbragði og sýklalyfjameðferð hjá þorski lýst. Ennfremur voru gerðar rannsóknir á eiginleikum hins sýkjandi stofns með sameindalíffræðilegum aðferðum. Faraldsfræði sýkingarinnar var könnuð með samanburði á Y. ruckeri úr þorski við stofna sem hafa verið einangraðir úr villtum- og eldisfiski af ýmsum tegundum og af ýmsum stöðum á Íslandi undanfarin ár.
Niðurstöður leiddu í ljós að rauðmunnaveiki getur borist á milli hjarða af ferskvants- og sjávarfiski. Meðhöndlun með sýklalyfi, sem bakterían er mjög næm fyrir, útrýmdi ekki sýkingunni. Skýringin er trúlega eðli ónæmisviðbragða þorsksins, sem leiðir til langvarandi hnúðóttrar sýkingar.
Erindið verður flutt á ensku og er öllum opið.
Nánari upplýsingar á viðburðadagatali Lífvísindaseturs