Hvenær hefst þessi viðburður:
31. október 2014 - 9:00 til 17:00
Nánari staðsetning:
Í Odda, Gimli og á Háskólatorgi

Þjóðarspegillinn XV: Ráðstefna í félagsvísindum verður haldinn föstudaginn 31. október 2014 við Háskóla Íslands. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í rannsóknum á sviði félagsvísinda á Íslandi.
Um 160 erindi verða flutt á ráðstefnunni í ár sem fjalla um efni allt frá þjóðfræði fyrri alda til afleiðinga íslenska efnahagshrunsins.
Í tengslum við ráðstefnuna verður veggspjaldasýning í Gimli og á Háskólatorgi þar sem fjölmargir fræðimenn, meistara- og doktorsnemar kynna rannsóknir sínar.
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á heimasíðu Félagsvísindastofnunar.