Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í lýðheilsuvísindum - Hanne Krage Carlsen

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. október 2014 - 10:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasal
Hanne Krage Carlsen

Hanne Krage Carlsen ver doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum:

„Heilbrigðisáhrif loftmengunar á Íslandi - öndunarfæraheilsa í eldgosaumhverfi.“ - „Health effects of air pollution in Iceland - Respiratory health in volcanic environments.“

Andmælendur eru dr. Francesca Dominici, prófessor við Harvard School of Public Health, og dr. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.

Leiðbeinandi Hanne Krage var dr. Anna Oudin, sérfræðingur við Háskólann í Lundi, og umsjónarkennari var Þórarinn Gíslason, prófessor  við Læknadeild Háskóla Íslands. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd dr. Bertil Forsberg, prófessor við Læknadeild Umeå Háskólans, dr. Anna-Carin Olin, prófessor við Sahlgrenska Háskólann í Gautaborg og dr. Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor og varadeildarforseti Læknadeildar Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin við Læknadeild Háskóla Íslands og  Umeå Háskóla í Svíþjóð.

Dr. Magnús Karl Magnússon, prófessor og forseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni.

 

Ágrip
Loftmengun hefur slæm áhrif á heilsu manna. Öndunarfærin eru mest útsett og skammtímabreyting í styrk loftmengunnar hefur verið tengd við versnun á teppusjúkdómum í lungum og aukningu á tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla. Loftmengun í borgum vegna bílaumferðar er áhyggjumál þar sem margt fólker útsett en svifryk, sandfok og aska frá eldgosum geta einnig ógnað heilsu manna.

Markmið ritgerðar þessarar var að rannsaka hvort loftmengun hafi mælanleg áhrif á heilsu íbúa Íslands. Doktorsritgerðin samanstendur af fjórum vísindagreinum sem hafa birst í erlendum vísindaritum og einu handriti.

Margar af þeim sem voru mest útsett fyrir eldgosinu í Eyjafjallajökli 2010 þjáðust af einkennum frá skynfærum og streitu. Lungnastarfsemi hópsins reyndist vera svipuð og hjá samanburðarhóp frá Reykjavík. Samanburðarrannsókn sex mánuðum eftir að gosi í Eyjafjallajökli lauk  kom í ljós að Sunnlendingar sem bjuggu “nálægt“ Eyjafjallajökli lýstu mun oftar einkennum frá öndunarfærum og augum heldur en samanburðarhópur sem bjó í Skagafirði. Andleg vanlíðan var algengari hjá þeim sem voru mest voru útsettir en hafði minnkað talsvert frá goslokum.

Á höfuðborgarsvæðinu var samband á milli dagsgilda svifryks, PM10,  og brennisteinsvetnis (H2S), og fjölda þeirra einstaklinga sem leystu út lyf gegn öndunarteppu, til dæmis við astma, 3-5 dögum síðar. Rannsóknartímabilið var árin 2006-2009 og notuð voru gögn frá lyfjagagnagrunni Landlæknis við samanburðin.. Samband fannst einnig á milli fjölda einstaklinga sem leitaðu til bráðamóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss vegna hjarta-, lungnasjúkdóma eða heilablóðfalla 2003 og styrks ósons (O3),  sama dag, sem og einum og tveimur dögum áður. Eftir eldgosin í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum árin 2010 og 2011 bættist eldgosaaska við sviftykið á höfuðborgarsvæðinu. Á tímabilinu 2007-2012 sáust vísbendingar um  áhrif PM10 á heilsufar. Þegar innihald svifrykstoppa var greind sást að þegar styrkurinn var hár einn dag vegna eldgosaösku var í kjölfarið marktæk aukning á fjölda heimsókna á bráðamóttöku og bráðainnlagna vegna hjarta- og æðasjúkdóma.

Í ritgerð þessari var sýnt fram á skammtímaáhrif bæði mengunar í bæjum og náttúrulegra agna á úttekt á astmalyfjum, heimsóknabráðamótttöku og innlagna á sjúkrahús. Svifryksagnir frá eldgosum voru sérstaklega tengdar auknum öndunarfæraeinkennum í útsettu þýði.

 

Um doktorsefnið
Hanne Krage Carlsen er fædd árið1981 og lauk MPH í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands árið 2010 og BA prófi í íslensku frá sama skóla árið 2011. Hanne Krage hóf doktorsnám við HÍ árið 2012. Hún er gift Steini Steingrímssyni.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012