Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Æfing í tungumálum með aðstoð innfæddra

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. október 2014 - 16:30
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Langar þig að hitta manneskju sem talar reiprennandi tungumálið sem þú ert að læra?
Langar þig að deila móðurmáli þínu með einhverjum sem er að læra það?
Langar þig einfaldlega til þess að eiga möguleika á að kynnast nýjum menningarheimum og eignast nýja vini?

HVAÐ: Komið og æfið ykkur í tungumálinu sem þið eruð að læra með aðstoð innfæddra
HVERJIR: Allir velkomnir sem hafa áhuga á tungumálum
HVENÆR: 9. október frá 16:30 - 18:00
HVAR: Í Stúdentakjallaranum við Háskóla Íslands

Stúdentakjallarinn býður nemendum í deild erlendra tungumála og erlendum skiptinemum að koma, tala saman og æfa sig í tungumáli að eigin vali. Tilboð verða á barnum. Ekki láta ykkur vanta þann 9. október!

Þessi viðburður er haldinn í samstarfi við Café Lingua, stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og fulltrúum nemenda við Háskóla Íslands.

Sjá viðburð á facebook.
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012