Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Hermun framburðar í inntakslóni Laxárvirkjana

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
22. september 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 104
Háskóli Íslands

Halla Bryndís Jónsdóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfisverkfræði. Verkefnið ber heitið Hermun framburðar í inntakslóni Laxárvirkjana.

Ágrip

Laxá er lindá sem rennur úr Mývatni og því með nokkuð stöðugt rennsli en í henni eru þrjár sírennslisvirkjanir, Laxá I, II og III. Inn í Laxá rennur áin Kráká sem kemur sunnan af söndum og ber með sér mikinn framburð sem fer allur í gegn um virkjanir Laxár með viðeigandi rekstrar- og viðhaldstöpum. Ekki hefur fundist hentug lausn á þessu vandamáli þó margar hugmyndir hafi verið settar fram. Með þessu verkefni var ein þeirra þ.e. dýpkun á inntakslóni Laxár III til framburðarsöfnunar hermd með straumfræðiforritinu HEC-RAS auk skolunar á framburði úr fullu inntakslóni. Samkvæmt niðurstöðum hermunar virtist þörf á 3 m dýpkun lónsins til söfnunar á ársframburði, en áin ber með sér um 40-60.000 tonn/ári. Þá væri inntakslón með 2 m dýpkun með hálfs til eins árs líftíma en við 5 m dýpkun hefði það um 2 ára líftíma. Hermanir á skolun leiddu í ljós að 5 m breið botnloka þyrfti að vera í 99 m y.s., 10 m breið botnloka þyrfti að vera 101 m y.s. og 2,5 m breið botnloka þyrfti að vera í 96 m y.s. fyrir fulla skolun. Einhver óvissa var í niðurstöðum hermunar og þá helst við hermun á skolun en val á flutningsjöfnu hafði mikil áhrif á niðurstöðu hennar. Minni óvissa virtist vera í niðurstöðum hermunar á fyllingu en nánast allur framburður sem áin bar með sér settist í inntakslónið. Á heildina litið virðist dýpkun inntakslóns Laxár III vera fýsilegur kostur við lausn á framburðarvandamálum þar og full ástæða þykir að skoða hann betur.

Leiðbeinandi: Sigurður Magnús Garðarsson og Andri Gunnarsson, Landsvirkjun
Prófdómari: Hörn Hrafnsdóttir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012