Hvenær hefst þessi viðburður:
22. september 2014 - 16:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 131

Arnar Björnsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í sjávarlíffræði. Verkefnið ber heitið Sound behaviour of humpback whales (Megaptera novaeangliae) on summer feeding grounds in NE-Icelandic waters.
Rannsóknar fólust í könnun á félagshljóðum og mati á hlutverki þeirra hjá hnúfubaki á sumarfæðustöðvum í Skjálfandaflóa við Norðausturströnd Íslands. Hljóðhegðunin var rannsökuð í sambandi við þá hegðun sem sást við sjónrænar athuganir, en hljóðupptökur fóru fram á með neðansjávarhljóðnemum.
Leiðbeinendur: Edda Elísabet Magnúsdóttir, Marianne Helene Rasmussen og Jörundur Svavarsson
Prófdómari: Gísli Víkingsson