
Á fjórða og síðasta rannsóknarkvöldi FÍF að vori mun Rúnar Helgi Vignisson flytja fyrirlesturinn: „Ekki skapað nema að skálda.“
Rúnar Helgi fjallar um ritlistina, kennslu í ritlist og gagnsemi hennar í skólastarfi og lífinu almennt. Spurt verður hvort hægt sé að kenna fólki að skrifa og hvort nemendur fái nógu mikið svigrúm til þess að nota móðurmál sitt á skapandi hátt í skólakerfi okkar. Gerð verður grein fyrir þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki ritlistarkennslu við Háskóla Íslands, skipulag námsins kynnt og reynt að útskýra hvernig fólk nái tökum á ritun, hvort sem er í formi skáldaðs eða óskáldaðs texta.
Rúnar Helgi Vignisson er höfundur sjö skáldverka og hefur þýtt sautján bækur. Fyrir þýðingar sínar hefur hann m.a. unnið til Íslensku þýðingaverðlaunanna og nýjasta skáldverk hans, sagnasveigurinn Ást í meinum, hlaut Menningarverðlaun DV. Hann er nú dósent í ritlist við Háskóla Íslands þar sem hann hefur umsjón með ritlistarnámi.
Allir velkomnir.