Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Fjöruarfi: Svæðisbundinn erfðabreytileiki og hnattræn könnun á litningagerð

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. maí 2014 - 14:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 132
Sigurður H. Árnason

Sigurður H. Árnason flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í líffræði. Verkefnið ber heitið Fjöruarfi: Svæðisbundinn erfðabreytileiki og hnattræn könnun á litningagerð.

Ágrip

Í þessari rannsókn voru bæði sameindamerking og frumuerfðagreining gerðar á völdum stofnum fjöruarfa, Honckenya peploides, til að ákvarða umfang erfðabreytileika í stofnum og aðgreiningar á milli stofna, auk þess sem breytileiki í litningagerð tegundarinnar var metinn. AFLP aðferð var beitt á stofna frá Surtsey og breytileiki þeirra mældur og borinn saman við stofna frá Heimaey, Stokkseyri, Garði, Grænlandi og Danmörku. Niðurstöður benda til m.a. að fjöruarfi hafi borist til Surtseyjar oftar en einu sinni og frá nokkrum svæðum bæði frá Heimaey og meginlandi Íslands. Fjöruarfi er aðallega ferlitnategund en niðurstöðurnar ásamt ítarlegri könnun heimilda benda til þess að erfðasamsetning fjöruarfa sé afar fjölbreytt á Íslandi eins og annars staðar.

Í meistararnefnd eru Kesara Anamthawat-Jónsson, leiðbeinandi, Borgþór Magnússon og Ægir Þór Þórsson.
Prófdómari er Dr. Snorri Baldursson.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012