Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn i lýðheilsuvísindum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. apríl 2014 - 10:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Aðalbygging
Háskóli Íslands

Andleg líðan og heilsutengd hegðun í kjölfar efnahagsþrenginga – Áhrif á Ísland“, Mental health and health behaviors following an economic collapse – The case of Iceland

Þriðjudaginn 29. apríl fer fram doktorsvörn við Læknadeild Háskóla Íslands. Þá ver Christopher Bruce McClure ritgerð sína „Andleg líðan og heilsutengd hegðun í kjölfar efnahagsþrenginga – Áhrif á Ísland“, Mental health and health behaviors following an economic collapse – The case of Iceland“.

Andmælendur eru dr. Nancy E. Reichman, prófessor  í barnalækningum við Rutgers University New Jersey og dr. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands Leiðbeinandi  var dr. Arna Hauksdóttir.

Dr. Magnús Karl Magnússon forseti Læknadeildar stjórnar athöfninni  sem fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands

Bakgrunnur: Efnahagshrunið á Íslandi í október 2008 var að mörgu leyti sérstakt í umfangi og hraða og eru enn ófyrirséð þau áhrif sem efnahagshrunið mun mögulega hafa á heilsufar þjóðarinnar. Fyrri erlendar rannsóknir hafa gefið vísbendingar um neikvæð áhrif en einnig jákvæð áhrif. Markmið þessarar rannsóknar var að rannsaka áhrif efnahagshrunsins á Íslandi á andlega líðan og heilsutengda hegðun.

Aðferðir: Allar rannsóknirnar voru unnar úr stórri heilsufarsrannsókn sem framkvæmd var á vegum Embættis landlæknis árin 2007 og 2009. Upphaflegt þýði rannsóknarinnar var byggt á lagskiptu slembiúrtaki íslensku þjóðarinnar. Helstu útkomubreyturnar voru andleg líðan (streita (N=3755) og þunglyndiseinkenni (N=3783)), reykingar (N=3755) og tannheilsa (N=4100). Streita var mældi með íslenskri útgáfu af Perceived Stress Scale (PSS-4) og þunglyndiseinkenni voru mæld með WHO-5 spurningalistanum.

Lokaorð:Niðurstöðurnar benda til þess að efnahagsþrengingarnarárið 2008 hafi haft neikvæð áhrif á andlega líðan fullorðinna á Íslandi, þá sérstaklega meðal kvenna. Á hinn bóginn komu í ljós jákvæðar breytingar í heilsutengdri hegðun, t.d. með lægra algengi reykinga og hegðun sem gæti leitt til betri tannheilsu. Frekari rannsóknir ættu að beinast að langtíma eftirfylgd  á þróun andlegrar líðanar og samspili við heilsutengda hegðun.

Christopher B. McClure lauk BS- gráðu í sálfræði frá Florida State University árið 2008 og meistaragráðu í lýðheilsuvísindum frá Yale School of Public Health árið 2011.  Áður hefur hann starfað við rannsóknir hjá Embætti landlæknis og við Yale háskólann í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig sinnt stundakennslu í grunn- og framhaldsnámi í lýðheilsuvísindum ásamt því að birta greinar í virtum tímaritum innan heilbrigðisvísinda. Hann starfar nú við rannsóknir hjá fyrirtækinu GetWellNetwork í Washington D.C. í Bandaríkjunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012