Hvenær hefst þessi viðburður:
30. apríl 2014 - 8:30 til 11:00
Nánari staðsetning:
Þjóðarbókhlaða

Gullna hliðið - Áskoranir í breyttu umhverfi upplýsingafræðinga
Ráðstefna 30. apríl 2014 - kl. 8:30 - 11:00 í Þjóðarbókhlöðunni
Ráðstefnan er haldin á vegum námsbrautar í upplýsingafræði við Háskóla
Íslands í samvinnu við Azazo – Gagnavörsluna. Fjölbreytt erindi eru á
dagskrá sem tengjast með einum eða öðrum hætti stjórnun og öryggi
upplýsinga. Á ráðstefnunni er einnig horft til teymisvinnu og mikilvægi
þess að ólíkar faggreinar innan fyrirtækja leggi saman lausnir sínar og stuðli þannig að árangursríkri innleiðingu hugbúnaðarverkefna og skilvirkri notkun upplýsingakerfa.
Húsið opnar kl.8.30
Dagskrá:
8:45 - 9:05
Upplýsingaský og öryggi
Hannes Pétursson, framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs Azazo
9:05 - 9:25
Kröfur starfsmanna : lækurinn finnur sér alltaf farveg!
Kristjana Nanna Jónsdóttir, ráðgjafi Azazo og Björt Baldvinsdóttir
9:25 - 9:45
Samfélagsmiðlar og upplýsingastjórnun : er skjalaöryggi ógnað?
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, námsbraut í
upplýsingafræði
9:45 - 10:00
KAFFI
10:00 - 10:20
Breytt hlutverk upplýsingastjórans : hvað heiti ég?
Gunnhildur Manfreðsdóttir, fagstjóri ráðgjafasviðs Azazo
10:20 - 10:40
Einföldun upplýsingaumhverfis hjá Landsneti
Ásgerður Kjartansdóttir, skjalastjóri og Sæmundur Valdimarsson,
deildarstjóri upplýsingatæknideildar Landsnets
10:40 - 11:00
Teymi - líka í upplýsingastjórnun
Sigurjón Þórðarson, ráðgjafi hjá Hagvangi
Aðgangur er ókeypis.
Hlökkum til að sjá ykkur!