
Miðvikudaginn 30. apríl nk. fer fram doktorsvörn við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Þá ver Guðrún Þengilsdóttir doktorsritgerð sína „Meðferðarheldni við lyf sem eru notuð langvarandi eða lotubundið: Hlutverk kerfi- og sjúklingaþátta við upphaf og lok meðferðar“ (Adherence to chronic and episodic drug therapy: The role of system and patient factors in treatment initiation and discontinuation.)
Andmælendur eru dr. Maarit Jaana Korhonen, sérfræðingur við Lyfjafræðideild Háskólans í Turku, Finnlandi og dr. Karl Andersen, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Leiðbeinandi var dr. Anna Birna Almarsdóttir. Dr. Már Másson, prófessor og deildarforseti Lyfjafræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst athöfnin klukkan 13:00.
Um rannsóknina
Umfjöllunarefni doktorsverkefnisins var meðferðarheldni á Íslandi, með áherslu á upphaf og lok meðferðar. Enn fremur voru áhrif greiðsluþátttökubreytinga á meðferðarheldni könnuð. Verkefnið byggir á gögnum úr lyfjagagnagrunni Landlæknisembættisins, gagnagrunni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og eigindlegum djúpviðtölum. Niðurstöður verkefnisins leiddu í ljós að hátt hlutfall einstaklinga sem hefur meðferð á nýju lyfi heldur meðferðinni ekki nógu lengi áfram til að meðferðarmarkmiðum sé náð og var hlutfallið hæst meðal notenda þunglyndislyfja. Einnig kom í ljós að talsverður hluti einstaklinga sem fær ávísun á nýtt lyf frá lækni byrjar aldrei lyfjameðferðina. Greiðsluþátttökubreytingar þær sem skoðaðar voru höfðu lítil áhrif á hlutfall einstaklinga sem héldu meðferð áfram eða byrjuðu meðferð á nýju lyfi. Niðurstöður eigindlega hluta verkefnisins leiddu í ljós lítinn mun á skoðunum fyrrum og núverandi lyfjanotenda, en almennt sýna lyfjanotendur lítinn skilning á nauðsyn lyfjameðferða meðan þeir kalla eftir betri stuðningi frá heilbrigðiskerfinu.
Doktorsverkefnið var unnið við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og lyfjafræðideild Háskólans í Utrecht, Hollandi. Verkefnið var styrkt af Rannsóknarnámssjóði Rannís, aðstoðarkennarastyrk Háskóla Íslands og verkefnastyrk Háskóla Íslands. Doktorsnefnd verkefnisins samanstóð af Önnu Birnu Almarsdóttur prófessor við Háskóla Íslands og University of Southern Denmark, Eibert R. Heerdink dósent við Utrecht University, Maríu Ólafsdóttur, læknir á heilsugæslustöðinni í Árbæ, Matthíasi Halldórssyni, lækni á Landspítala, og Ingunni Björnsdóttir, dósent við Oslóarháskóla.
Guðrún Þengilsdóttir er fædd árið 1984. Hún lauk BS prófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og MS prófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands árið 2009. Guðrún hóf doktorsnám við lyfjafræðideild árið 2009. Meðfram náminu hefur hún starfað sem lyfjafræðingur hjá Lyfjum og heilsu. Guðrún er dóttir Selmu Hauksdóttur og Þengils Ásgrímssonar.