
Föstudaginn 2. maí kl 13 fer fram doktorsvörn við Læknadeild Háskóla Íslands, vörnin fer fram í Hátíðasal Háskólans. Þá ver Árni Jón Geirsson læknir doktorsritgerð sína; Hryggikt á Íslandi: Birtingarmyndir og erfðir, með sérstöku tilliti til þarmabólgusjúkdóma. Heiti ritgerðarinnar á ensku er: "Ankylosing spondylitis in Iceland; clinical studies with reference to epidemiology, heritability and connection with inflammatory bowel disease". Andmælendur eru Dr. Filip Van den Bosch prófessor við Háskólasjúkrahúsið í Gent, Belgíu og Dr. Gerður Gröndal klínískur dósent við Landspítalann. Aðalleiðbeinendur í verkefninu voru Dr. Björn Guðbjörnsson prófessor í gigtarrannsóknum og Dr. Bjarni Þjóðleifsson, prófessor emerítus í meltingarfærasjúkdómum. Athöfninni stjórnar prófessor Magnús Karl Magnússon, forseti Læknadeildar
Ágrip
Hryggikt er bólgusjúkdómur sem leggst aðallega á ungt fólk. Höfuðeinkenni sjúkdómsins eru langvinnir verkir og stirðleiki í þjóhnöppum og mjóbaki. Í upphafi myndast bólga í spjaldliðum ásamt smáliðum hryggjar og þar sem liðbönd og liðpokar festast við hryggjarliðboli. Sjúkdómurinn getur þróast upp alla hryggjarsúluna. Beinnýmyndun í miðlægum liðum og í liðböndum hryggjarins, samfara vaxandi hreyfiskerðingu, er dæmigert fyrir framvindu sjúkdómsins. Liðbólgur í útlimaliðum, bólgur í hælsinafestum, lithimnubólga og blöðruhálskirtilsbólga hjá körlum, eru algeng fylgieinkenni hryggiktar.
Tilgangur rannsóknarinnar var að lýsa og skilgreina hryggikt á Íslandi, kanna ættlægni og skyldleika hryggiktar við þarmabólgusjúkdóma. Gerð var kerfisbundin leit að sjúklingum með hryggikt í sjúkraskrárkerfum LSH og FSA. Einnig var leitað til sjálfstætt starfandi gigtarlækna í landinu. Til þátttöku komu 280 sjúklingar með hryggikt. Einnig var leitað eftir þátttöku nákominna ættmenna sjúklinga. Vefjaflokkun m.t.t. HLA-B27 var framkvæmd og ættir raktar með hjálp Íslendingabókar. Enn fremur voru tengsl hryggiktar við þarmabólgusjúkdóma rannsökuð.
Niðurstöður hafa verið birtar í fjórum sjálfstæðum vísindagreinum í alþjóðlegum fræðiritum (I-IV). Rannsóknin sýnir að sjúkdómurinn birtist með öðrum hætti hér á landi en í nágrannalöndunum. Erfðatengsl eru sterk í marga ættliði, auk þess sem það eru sterk erfðatengsl á milli hryggiktar og þarmabólgusjúkdóma. Niðurstöðu rannsóknarinnar eru grunnur að nýrri þekkingu á fræðasviðinu.
Árni Jón Geirsson fæddist í Reykjavík 1952, sonur Geirs Guðmundssonar og Heklu Árnadóttur. Árni útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1972 og frá Læknadeild Háskóla Íslands 1978. Hann stundaði sérfræðinám í almennum lyflækningum við Háskólasjúkrahúsið Östra í Gautaborg og við New Britain General Hospital í Connecticut Bandaríkjunum á árunum 1981-1984. Árni var í sérfræðinámi í gigtarlækningum við Háskólasjúkrahúsið í Lundi, Svíþjóð, á árunum1984-1987. Árni hefur starfað við gigtardeild Landspítalans frá árinu 1988. Hann hefur einnig rekið eigin læknastofu í Læknasetrinu við Þönglabakka frá 1989. Árni var formaður Félags íslenskra gigtarlækna um tíma.
Árni Jón er kvæntur dr. Sigríði Þórdísi Valtýsdóttur, lyf- og gigtarlækni, og eiga þau 6 börn.