Hvenær hefst þessi viðburður:
2. apríl 2014 - 20:00
Nánari staðsetning:
Hljóðbergi í Hannesarholti, Grundarstíg 10

Á þriðja rannsóknarkvöldi FÍF að vori mun Kolfinna Jónatansdóttir flytja fyrirlesturinn: „Ragnarök.“
Í Gylfaginningu og Völuspá eru einu heildstæðu frásagnirnar um ragnarök sem við þekkjum. Til eru aðrar miðaldaheimildir þar sem minnst er á ragnarök og önnur heimsslitafræðileg þemu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um þær lýsingar sem brugðið er upp af ragnarökum og tengdum atburðum í Gylfaginningu, Völuspá og öðrum heimildum. Rætt verður hvort hægt sé að finna heildstæða mynd af ragnarökum og hvaða hlutverki þau gegna í heimsmynd miðalda.
Kolfinna lauk MA prófi í íslenskum bókmenntum frá HÍ 2008. Hún er nú doktorsnemi í íslenskum bókmenntum og fjallar doktorsrannsókn hennar um ragnarök og heimsslitafræði.
Allir velkomnir.