Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fiskeldi, áhrif af sjókvíaeldi og lausnir Málstofa 3

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. apríl 2014 - 13:30
Nánari staðsetning: 
Café Sólon, Bankastræti
Háskóli Íslands

Nú fer fram röð málstofa um fiskeldi í kvíum í sjó og á landi á vegum NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna, Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Ísland og Líffræðifélags Íslands.
Fyrsta málstofan var haldin 17. janúar 2014, sú næsta var haldinn 14. mars og sú þriðja verður haldin 4. apríl næstkomandi.
Mikil umræða á sér nú stað um arðsemi, kosti og galla laxeldis í sjó. Reynsla af fiskeldi í sjó hér við land og erlendis hefur verið misjöfn og full ástæða er til að fara vandlega yfir hina ýmsu þætti eldisins áður en teknar eru ákvarðanir um frekari framkvæmdir á því sviði.  
Nú er komið fram á Alþingi frumvarp til laga, þingskjal 609 - 319. mál um breytingu á lögum um fiskeldi. Nauðsynlegt er að efna til umræðna um fjölmarga þætti sem varða fiskeldi, umhverfi, byggðir og vottun afurða áður en afdrifaríkar breytingar verða lögfestar.
Á næstu málstofu munu sérfræðingar gera grein fyrir lagaumhverfi fiskeldis hér á landi frá upphafi og sérstaklega um núgildandi lög og þær breytingar sem nýja frumvarpið felur í sér. Meðal þeirra verða Árni Ísaksson fyrrum forstöðumaður lax- og silungsveiðimála hjá Fiskistofu auk fulltrúa Landssambands fiskeldisstöðva og Landssambands veiðifélaga.
Upplýsingar um fyrstu tvær málstofurnar þ.a.m. slæður frummælenda má finna á vef Líffræðifélags Íslands biologia.is
Málstofan fer fram á íslensku og verður haldin á Café Sólon í Reykjavík föstudaginn 4. apríl, 2014, kl. 13:30 – 16:30.
Allir eru velkomnir og beðnir  að skrá sig til þátttöku hjá nasf@vortex.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012