
Í tvo áratugi hefur kynjasamþætting verið ráðandi aðferð við að vinna að jafnrétti í þróunarsamvinnu. Aðferðin hlaut brautargengi á jafnréttisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking árið 1995 og breiddist þaðan hratt út til flestra þeirra stofnana og samtaka sem starfa að þróunarmálum. Að mörgu leyti safnaði hún saman í einn farveg baráttu undangenginna áratuga fyrir breytingum í þágu jafnréttis í þróunarstarfi. Í erindinu er velt upp spurningum eins og hverju hefur kynjasamþætting skilað og hvar stöndum við nú 20 árum síðar?
Þórdís Sigurðardóttir, staðgengill framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands
Fundarstjóri: Kristín Loftsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands
Alþjóðamálastofnun stendur fyrir fjórum málstofum um þróunarmál og neyðaraðstoð í samstarfi við námsbraut í mannfræði við Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið. Málstofurnar verða haldnar í hádeginu á fimmtudögum í mars.