Hvenær hefst þessi viðburður:
13. mars 2014 - 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 201

Fimmtudaginn 13. mars 2014 kl. 12-13 í stofu 201 í Árnagarði heldur Jarþrúður Þórhallsdóttir fyrirlestur á vegum MARK Miðstöðvar margbreytileika- og kynjarannsókna við Háskóla Íslands í samvinnu við Rannsóknasetur í fötlunarfræðum þar sem hún segir frá bók sinni Önnur skynjun – ólík veröld: Lífsreynsla fólks á einhverfurófi.
Í bókinni leitar Jarþrúður skýringa á erfiðleikum fólks á einhverfurófi. Hún rekur sögu þeirra sjónarmiða og kenninga sem hingað til hafa ráðið för í rannsóknum á einhverfu og greinir frá eigin rannsókn sem hún gerði í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands.
Fólk á einhverfurófi hefur ekki átt sterka rödd í samfélagi okkar og þegar fjallað er um líf þess hefur gjarnan verið leitað til annarra en þess sjálfs. Markmið rannsóknarinnar var að afla þekkingar og skilnings á því hvernig það er að vera á einhverfurófi út frá sjónarhóli þeirra sem hafa þá reynslu. Megináhersla var lögð á að öðlast þekkingu á skynjun og skynúrvinnslu fólksins og áhrifum hennar á daglegt líf. Auk þess var áhersla lögð á að afla þekkingar á þýðingu greiningarinnar svo og reynslu þátttakaenda af skólagöngu. Rannsóknin byggir á 21 viðtali við átta fullorðna einstaklinga.
Niðurstöðurnar gefa veigamiklar upplýsingar um lífið á einhverfurófi og undirstrika mikilvægi þess að aðrir sýni sérstakri skynjun og skynúrvinnslu skilning. Í lok bókarinnar eru gefin einföld og hagnýt ráð til að að fækka þeim hindrunum sem mæta fólki á einhverfurófi. Í eftirmála er frásögn úr lífi ungrar einhverfrar konu sem ekki getur tjáð sig með orðum.
Jarþrúður er MA í fötlunarfræðum og sjúkraþjálfari. Hún starfar sem einhverfuráðgjafi hjá Fjölmennt símenntunar- og þekkingarmiðstöð og einnig sem réttindagæslumaður fatlaðs fólks.
ÖLL VELKOMIN