
Eyja Margrét Brynjarsdóttir heldur erindi um Susan Stebbing í Árnagarði fimmtudaginn 27. febrúar, kl. 15.
Susan Stebbing (1885-1943) var fyrsta konan sem varð prófessor í heimspeki í Bretlandi og einn af stofnendum tímaritsins Analysis. Hún kenndi lengst af við Bedford College í London en hélt alla tíð sterkum tengslum við Cambridge-háskóla og var fremst í flokki meðal þeirra sem kenndir hafa verið við Cambridge-greiningu (Cambridge analysis) sem var áberandi á fjórða áratug síðustu aldar. Stebbing gaf út fjölda bóka, meðal annars um rökfræði og um heimspekilega afstöðu til heimsmyndar raunvísindanna. Einnig var henni hugleikið mikilvægi þess að beita rökhugsun, eða „góðri hugsun“, í pólitískri ákvarðanatöku. Þannig eru tvær síðustu bækur hennar, Thinking to Some Purpose og Ideals and Illusions, skrifaðar í aðdraganda og við upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar, helgaðar umfjöllun um áhrif áróðurs og loðinnar hugsunar á hugsun almennings og stjórnvalda.