Hvenær hefst þessi viðburður:
20. febrúar 2014 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Lögberg 103

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þróunina frá kommúnisma í átt til lýðræðis á 9. áratugnum í Mið-Evrópu. Sjónum verður sérstaklega beint að þeim breytingum sem áttu sér stað í Tékkóslóvakíu. Innri og ytri áhrifaþættir verða ræddir, til dæmis alþjóðlegt umhverfi, staða innan kommúnistaflokka, hlutverk andstöðuhreyfinga og elítunnar, ásamt andrúmsloftinu í þjóðfélaginu. Þá verður rætt um helstu gerendur og þróunin sett í samhengi við lagalegt umhverfi.
Dr. Petr Just er lektor við Metropolitan háskólann í Prag og Erasmus gestakennari við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Fundarstjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram á ensku.