
Steinunn Kristjánsdóttir flytur fyrirlesturinn Páfagarður og íslensku klaustriní Þjóðminjasafni miðvikudaginn 22. mars kl. 12-13.
Samfélög Evrópu tóku stakkaskiptum með undraverðum hætti í kjölfar útþenslu Rómarkirkju og páfagarðs sem hófst syðst í álfunni á 6. öld og stóð út miðaldir. Ísland var þar ekki undanskilið og urðu breytingarnar mjög fljótt sýnilegar hérlendis, einkum þó fyrst eftir kristnitökuna 999/1000. Í fyrirlestrinum verða þessar breytingar skoðaðar í gegnum fornleifafræðileg gögn og þá fyrst hvað breyttist en síðan hvað hvarf þegar útþensla Rómarkirkju var stöðvuð við siðaskiptin um 1550.
Erindið er flutt í fyrirlestraröðinni Nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði sem Félag fornleifafræðinga, námsbraut í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnið standa að.