
Örnámskeið um pólska kvikmyndagerð, annar hluti:
22. mars, 17-19, Lögberg 101:
Umbreytingar í pólskum kvikmyndum í Póllandi (auk sýningar á "The Purimspiel"). Eftir 26 ára tímabil pólitískra og efnahagslegra breytinga í Póllandi, mikla sjálfsvitundarleit og tímabil erlendra (aðallega bandarískra) áhrifa, er pólsk kvikmyndagerð á uppleið.
Miroslaw Jelonkiewicz hefur verið fyrirlesari í Polonicum Centre of Polish Language and Culture í Warsaw-háskóla síðan 1974 og kennir pólsku sem erlent mál. Hann sérhæfir sig í kennslu pólskrar sögu og menningar í gegnum kvikmyndir. Síðustu 25 árin hafa greinar hans verið gefnar út í tímaritum á borð við Plonicum Quarterly og Postscriptum. Hann hefur kennt pólska menningu í á annan tug evrópskra háskóla og er meðlimur í Erasmus verkefni fyrir kennara. Frá árunum 1984-89 kenndi Mr Jelonkiewicz pólsku í Háskóla í Nýju Delí á Indlandi.