
Efnt er til kynningar á nýrri bók og málþings undir yfirskriftinni Völuspá - Norrænn dómsdagur. Á málþinginu verður fjallað um rannsóknir á miðaldatextum með áherslu á nýjar rannsóknir á Völuspá og tengslum hennar við myndræna túlkun og texta sem fjalla um endalok heims, dómsdag og nýjan himin og nýja jörð.
Málþingið verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins laugardaginn 18. janúar 2014. Það eru Þjóðminjasafnið, Árnastofnun, Guðfræðistofnun og llistamennirnir Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir sem standa að þinginu. Tryggvi Gíslason magister er málþingsstjóri.
Dagskrá:
13.00 Margrét Hallgrímsdóttir Þjóðminjavörður: Ávarp.
13.10 Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir myndlistarmenn : Sköpunar- og túlkunarsaga. Glerlistaverk Leifs út frá Völuspá í Grand Hótel Reykjavík.
13.30 Torf H. Tuliníus prófessor: Norrænn dómsdagur, ný bók um Völuspá.
14.00 Þórhallur Eyþórsson dósent: Aldrnari í Völuspá.
14.30 Kolfinna Jónatansdóttir doktorsemi: „Er í böndum skal bíða ragnarökurs“ - Um fjötraðar óvættir sem losna í ragnarökum.
15.00 Kaffihlé.
15.30 Sif Ríkharðsdóttir lektor: Túlkunaraðferðir í rannsóknum á miðaldatextum.
16.00 Ásdís Egilsdóttir prófessor: Dómsdagsmyndir íslenskra helgikvæða.
16.30 Pétur Pétursson prófessor: Sögulegur og pólitískur bakgrunnur rússneskra dómsdagsmynd á 15.öld.
17.00 Haraldur Erlendsson geðlæknir: Helgunar- og heilunarferlið í rússneskum dómsdagsmyndum.