
Theresa Maria Quinkler flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í líffræði. Verkefnið ber heitið Pontin an Reptin subcellular localization and interactions in Drosophila.
Ágrip
Próteinin Pontin og Reptin gegna ýmsum mikilvægum en illa skilgreindum hlutverkum í frumum heilkjörnunga. Í þessu verkefni var ávaxtaflugan Drosophila melanogaster notuð sem tæki til þess að kanna nánar eiginleika próteinanna, svo sem staðsetningu í frumum, samspil við önnur prótein og áhrif á taugaþroskun. Í ljós kom að þrátt fyrir að próteinin séu almennt talin til kjarnapróteina, fannst mest af þeim í umfrymi þar sem þau sýndu oft svipaða dreifingu og örpíplur. Stökkbreytingar í virknisetum próteinana höfðu þónokkur áhrif á staðsetningu þeirra. Samskipti Pontin, Reptin og stjórneininga 19S próteasómflóka voru könnuð með tilliti til staðsetningar innan frumu. 19S próteineiningarnar fundust í miklum mæli á sömu svæðum og Pontin/Reptin, m.a. á mítósuspólum.