Hvenær hefst þessi viðburður:
27. janúar 2017 - 13:30 til 16:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasalur

Verkefnið 2017.is efnir til málþings um Lúther og listirnar í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 27. janúar kl. 13:30-16:00.
Fjallað verður um áhrif siðaskiptanna á íslenska menningu á 16. og 17. öld. Flutt verða fjögur erindi um tónlist, dans, myndlist og bókmenntir.
Erindi:
- Árni Heimir Ingólfsson: Lúther, Guðbrandur og trúboð tónlistarinnar.
- Ingibjörg Björnsdóttir: Engladans og vikivakar.
- Æsa Sigurjónsdóttir: Sjónmenning siðskiptanna. Tilraun til kortlagningar.
- Margrét Eggertsdóttir: „Að vanda ljóð Guði til handa“. Siðbætandi og siðspillandi bókmenntir.
Fundarstjóri: Eva María Jónsdóttir