Hvenær hefst þessi viðburður:
17. janúar 2017 - 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa N132

Kjell Asplund, formaður sænska landsiðaráðsins um læknisfræðilega siðfræði, áður prófessor og landlæknir í Svíþjóð, heldur erindi á vegum Siðfræðistofnunar um plastbarkamálið svokallaða. Kjell Asplund er höfundur skýrslu sem birt var í lok ágúst s.l. um þátt Karólinska sjúkrahússins í málinu þar sem ítalski læknirinn Macchiarini starfaði.
Fyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 17. janúar kl. 12.00 í stofu N132 í Öskju. Fyrirlesturinn verður haldinn á ensku og er öllum opinn.