Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Sýningaropnun — Nýsköpun í textíl

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. janúar 2017 - 14:30 til 13. janúar 2017 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Skáli
Textílsýning
Sýning á afrakstri þróunarverkefnis í innleiðingu nýsköpunar í textíl verður opnuð þriðjudaginn 10. janúar kl. 14.30.
 
Um er ræða spennandi samstarfs- og þróunarverkefni sem styrkt er af Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðaneytisins í innleiðingu nýsköpunar í textíl hjá verðandi textílkennurum á Menntavísindasviði og nemenda í textílmennt í 10. bekk í Garðaskóla í Garðabæ.
 
Verkefnið var samvinna Ásdísar Jóelsdóttur, lektors í textíl við Menntavísindasvið, og Guðrúnar Einarsdóttur, textílkennara í Garðaskóla. Verkefnið var fólgið í því að kennaranemar leiðbeindu nemendum í 10. bekk í tengslum við tilraunavinnu með ýmsum nýjum textílaðferðum og hugmyndavinnu fyrir nýsköpunarverkefni, ásamt því að vinna að eigin nýsköpunarverkefnum.
 
Á sýningunni eru verk eftir kennaranema við Háskóla Íslands og nemendur í Garðaskóla.
Meðal verka eru sokkabuxur úr endurnýttu efni, handtaska úr fjölbreyttu hráefni, fjölnota drykkjarmál, textílkennarasvunta, blómapottaskrauthlíf og nýstárleg lopapeysa.
 
Sýningin stendur frá 10.-13. janúar og er staðsett fyrir framan matsalinn í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð.
 

Sjá einnig: Nytjahlutir og tískuflíkur á textílsýningu


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Trending Articles