
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
Brexit: Bak við tjöldin
Þann 23. júní sl. kusu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga úr Evrópusambandinu. Afleiðingar þessarar ákvörðunar eru margþættar og felur hún ekki aðeins í sér endurmótun á pólitísku og efnahagslegu landslagi Vesturlanda, heldur hefur hún einnig áhrif á valdajafnvægi í alþjóðakerfinu og samskipti milli ríkja.
Á þessum opna fundi mun Hugo Brady fjalla um það hvernig ákvörðunin um brotthvarf Bretlands úr ESB bar að og hvers vegna. Einnig mun hann varpa ljósi á þær lokatilraunir sem gerðar voru til að halda Bretlandi í Evrópusambandinu. Að lokum mun hann fjalla um hvað muni gerast á næstu vikum og mánuðum í samskiptum Bretlands og ESB.
Hugo Brady er sérfæðingur til margra ára um Bretland og Evrópusambandið og hefur starfað sem ráðgjafi Donald Tusk, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, síðan í desember 2014.
Fundarstjóri: Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarristjóri Kjarnans
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.
Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun