Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Uppgjör við kosningabaráttuna

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. nóvember 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Háskóli Íslands

Félag stjórnmálafræðinga stendur fyrir, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, hádegisfundi undir yfirskriftinni „Uppgjör við kosningabaráttuna“.

Með innlegg í panel verða þau Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði, Þórunn Elísabet Bogadóttir aðstoðarritstjóri Kjarnans, Andrés Jónsson almannatengill og framkvæmdastjóri Góðra samskipta og Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Þau munu fara yfir spurningar á borð við hvað, ef eitthvað, var óvanalegt við þessa kosningabaráttu, hefur fjöldi flokka í framboði áhrif á hvort að vísir að blokkamyndun flokka myndist og hverjum gagnast neikvæð kosningabarátta.

Allir velkomnir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012