Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fyrirlestur: Söngvar kirkjunnar fyrr og nú í aðdraganda aðventu og jóla

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
21. nóvember 2016 - 11:40
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 229
Háskóli Íslands

Mánudaginn 21. nóvember n.k. heldur Margrét Bóasdóttir fyrirlestur í boði Guðfræðistofnunar í stofu 229 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 11:40 og lýkur kl. 13.

Yfirskrift fyrirlestursins er: „Með gleðiraust og helgum hljóm“: Söngvar kirkjunnar fyrr og nú í aðdraganda aðventu og jóla.

Enginn tími kirkjuársins er eins ríkulega tengdur tónlist og jól og aðventa. Tónlistin sem er aðeins flutt á einum mánuði árlega. Hvaða tónlist er það sem túlkar jólaboðskapinn í hinum mismunandi löndum? Hvað syngja þjóðirnar á jólum og hvaða stóru tónverk færa okkur fagnaðarboðskapinn? Fjallað verður um sálma og tónverk jólatímans með tóndæmum og jafnvel verður æft fyrir jólamessuna með viðstöddum!

Margrét Bóasdóttir er söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og stundakennari við Guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands á haustönn. Hún er menntuð söngkona, kórstjóri og tónlistarkennari og kirkjutónlistin hefur verið hennar vettvangur í söng og tónlistarfræðslu.  Sálmar eru hennar sérstaka áhugamál og sálmasöngur með því skemmtilegasta sem hún veit.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012