
Dr. Jennifer Gabrys, prófessor við Goldsmiths-háskóla í London heldur fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur.
Efni fyrirlestrarins: Líffræðilegar vísbendingar [lífbendingar] eru ferli þar sem margar lífverur verða samtímis fyrir áhrifum af umhverfi sínu, skynja það eða jafnvel umbreyta því. Hægt er að rannsaka ýmsar æðplöntur til að finna merki um ósónskaða. Hægt er að skoða aðrar lífverur, svo sem mosa, til að finna ummerki mengunar lofts og jarðvegs, en sveppi má hins vegar meta út frá vísbendingum um heilsufar skóga og mælingar á lindýrum geta gefið vísbendingar um eiginleika vatns. Lífbendingar eru ekki aðeins aðferðir til að skynja umhverfið og auka skilning okkar á áhrifum mengunar á aðrar lífverur, heldur varpa þær fram mikilvægum spurningum um skyldur mannsins gagnvart umhverfinu.
Yfirlit yfir rannsóknir Gabrys má finna á vefsíðunum www.citizensense.net og www.jennifergabrys.net.
Í framhaldi af fyrirlestri Gabrys, kl. 16:00 verður kynning og umræður um vinnustofuna Future Fiction: Zooetics Pavilion of Ballardian Technologies.
En þá munu Nomeda og Gediminas Urbonas í ACT (art, culture, technology) við MIT háskólann(USA) og stjórnendur Zooetics verkefnisins (zooetics.net) kynna ásamt öðrum ,
niðurstöður vinnustofunnar og ræða við áhorfendur.
Future Fiction: Zooetics Pavilion of Ballardian Technologies.
Dagana 13. - 16. október 2016 dvaldi alþjóðlegur hópur listamanna, hönnuða og rithöfunda á Ásbrú, Reykjanesi þar sem áður var herstöð NATO). Umbreyting hennar úr afgirtri herstöð í klakstöð skapandi og hagrænna greina vekur upp fjölmargar spurningar um tækni- og
vísindalegar ímyndir sem næra þessa umbreytingu og styrkja framtíðarsýn okkar. Einum lykilþætti í slíkum ímyndum mætti lýsa þannig að sjálfsmynd okkar sé mæld á mælikvarða líkamans sem tæknin hefur aftur auðgað. Með því að blanda saman hefðbundinni og framsækinni tækni í líffræðilegum vefnaði, þróuðu þátttakendur hugtök um klæðnað sem gerir okkur fært að hugsa og ræða um samlíf ólíkra lífvera.
Vinnustofan er samstarfsverkefni OH-verkefnisins og Zooetics verkefnisins og unnin í samstarfi við Keili, KADECO á Ásbrú, Háskóla Íslands og fleiri stofnana.
Zooetics verkefnið er listrænt og þverfræðilegt ferli sem spannar fimm ár og tekur til fyrirlestra, vinnustofa og sýninga þar sem leitað er nýrra leiða til að virkja þekkingu mannsins og rannsóknir samhliða öðrum lífsformum með það fyrir augum að ímynda sér nýja snertifleti milli vistfræða ólíkra dýrategunda.
OH-verkefnið er listrannsóknarverkefni með vinnuaðstöðu í gamla varnarhliðinu á Miðnesheiði. Verkefnið hefur notað svæðið sem brú á milli kalda stríðsins í fortíð Íslands og hlýnunar í framtíðinni á Norðurslóðum. Vefsvæði verkefnisins: https://oh-project.squarespace.com/#oh-project.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur!