
Föstudaginn 23 september ver Guðný Gústafsdóttir doktorsritgerð sína: Miðlað í gegnum meginstrauminn: Ímynd(ir) kvenleika og þegnréttar á Íslandi samtímans 1980-2000.
Vörnin ferð fram í Hátíðasal Háskóla Íslands kl 14:00 og er öllum opin. Andmælendur eru Dr. Guðný Guðbjörnsdóttir og Dr. Karen Ross.
Ímynd kvenna á Íslandi samtímans hefur verið samofin kynjajafnrétti. Ímyndin á rætur í sögunni og var á síðustu áratugum styrkt með félagslegum athöfnum, svo sem kosningu Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta árið 1980 og framboði Kvennalista til Alþingis. Þegar ímyndin er mátuð við stöðu kvenna kemur í ljós ákveðin mótsögn. Þrátt fyrir framgang kvenna, formlegt kynjajafnrétti, mikla menntun og atvinnuþátttöku, hafa völd og áhrif kvenna í hinu opinbera rými haldist takmörkuð. Í doktorsritgerðinni er leitast við að varpa ljósi á þessa mótsögn með því að greina hugmyndir um kvenleika og þann þegnrétt sem þeim fylgdi í orðræðu tímarita sem gefin voru út á tímabilinu 1980-2000. Ímynd hins kvenlega þegns á Íslandi samtímans er greind með hliðsjón af menningarbundnum, pólitískum og hugmyndafræðilegum áhrifavöldum.
Leiðbeinandi var Dr. Þorgerður Einarsdóttir og í doktorsnefnd sátu Dr. Helga Kristín Hallgrímsdóttir og Dr. Sigríður Matthíasdóttir
Guðný Gústafsdóttir er fædd 14 maí 1962 í Neskaupstað. Hún stundaði nám í þýskum nútímabókmenntum, félagsfræði og norrænum bókmenntum við Alberts-Ludwig Universität Freiburg og Freie Universität Berlin í Þýskalandi.
Guðný er með Diploma í rekstrar- og viðskiptafræði 2001 og MA í kynjafræði frá Háskóla Íslands 2009.