Hvenær hefst þessi viðburður:
17. september 2016 - 11:45
Nánari staðsetning:
Bílastæðið við Gróttu á Seltjarnarnesi.

Við leggjumst í fjörurannsóknir í Gróttu. Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor og Kristín Norðdahl lektor, báðar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, fræða okkur um heim fjörunnar og sýna það sem býr í þaranum og undir steinunum laugardaginn 17. september kl. 11.45. Gengið verður hringinn í kringum Gróttu og þess gætt að klára hann áður en göngustígurinn hverfur í sjóinn! Stígvél og fötur eru góður útbúnaður og nesti er alltaf nauðsynlegt. Ferðin tekur um tvær klukkustundir.
Gangan er hluti af verkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna, undirdeildar Ferðafélags Íslands, sem nefnist Með fróðleik í fararnesti og hófst á aldarafmæli skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í þessum áhugaverðu gönguferðum. Markmiðið með þeim er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskóla Íslands og Ferðafélagsins.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.