
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við meistara- og diplómanám í fjölmiðla- og boðskiptafræði og meistaranám í blaða- og fréttamennsku.
Í fyrirlestrinum fjallar Dr. Emma Briant um tilraunir bandarískra stjórnvalda í kjölfar hryðjuverkanna 11. september til að móta og hafa áhrif á umfjöllun fjölmiðla um baráttu þeirra í svonefndu stríði gegn hryðjuverkum. Í fyrirlestrinum mun hún m.a. vísa til viðtala sem hún hefur átt við háttsetta heimildamenn innan bandaríska stjórnkerfisins, hermálayfirvalda og öryggisþjónustunnar, auk viðtala við blaðamenn og almannatengslafulltrúa, sem varpa ljósi á tilraunir bandarískra yfirvalda til að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla og almenningsálitið.
Dr. Emma Briant er lektor í blaðamennskufræðum við Háskólann í Sheffield.
Hún er höfundur bókarinnar Propaganda and Counterterrorism: Strategies for Global Change, sem kom út árið 2014 og meðhöfundur bókarinnar Bad News for Refugees (2013). Dr. Briant hefur birt fjölda greina í virtum ritrýndum tímaritum á undanförnum árum.
Fundarstjóri: Ragnar Karlsson, aðjúnkt og verkefnastjóri meistara- og diplómanáms í fjölmiðla og boðskiptafræðum við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn.
Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun