Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn Soffíu Auðar Birgisdóttur: Ég skapa – þess vegna er ég. Sjálfsmyndir, sköpun og fagurfræði í skrifum Þórbergs Þórðarsonar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. maí 2016 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Soffía Auður Birgisdóttir

Fimmtudaginn 12. maí fer fram doktorsvörn við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Soffía Auður Birgisdóttir ritgerð sína Ég skapa – þess vegna er ég. Sjálfsmyndir, sköpun og fagurfræði í skrifum Þórbergs Þórðarsonar.

Andmælendur eru dr. Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og dr. Jürg Glauser, prófessor við Háskólann í Zürich. Dr. Gunnþórunn Guðmundsdóttir, varaforseti íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst kl. 13:00. Sent verður beint út frá vörninni í fyrirlestrasal Nýheima, á Höfn í Hornafirði.

Um efni ritgerðarinnar

Þórbergur Þórðarson var einn helsti rithöfundur á Íslandi á tuttugustu öld og skrif hans spanna víðfeðmt svið bókmennta. Í ritgerð sinni nálgast Soffía Auður skrif Þórbergs frá ólíkum hliðum en áhersla hennar beinist að þeim ritverkum hans sem flestir nú á dögum telja til fagurbókmennta þótt sú hafi ekki endilega verið raunin þegar þau komu fyrst fyrir augu lesenda. Sérstaklega kannar hún þau mörk sjálfsævisögu og skáldskapar sem Þórbergur lék sér iðulega á. Kannað er hvernig Þórbergur færir eigin reynslu í búning skáldskapar, sem einnig má kalla fagurfræði höfundarins.

Rannsóknartilgáta ritgerðarinnar er sú að með skrifum sínum hafi Þórbergur kynnt til sögunnar nýja tegund bókmennta á Íslandi, bókmenntagrein sem sterk rök eru fyrir að kenna við skáldævisögu, og hafi þannig haft mikil áhrif á íslenskar bókmenntir, ekki síst frásagnarbókmenntir síðastliðinna tuttugu ára. Rýnt er í hinar fjölbreyttu sjálfsmyndir Þórbergs og kynnt til sögunnar hugtakið fjölmyndasafn en fjölmynd er hugtak frá Þórbergi Þórðarsyni komið. Sjálfslýsingar Þórbergs sæta miklum tíðindum þegar skrif hans eru tengd við sögu íslenskra bókmennta og sérstaklega er hugað að þeirri nýstárlegu mynd af karlmanni sem blasir við í skrifum Þórbergs.

Í ritgerðinni er leitast við að tengja skrif Þórbergs við æviskrifafræði enda á Þórbergur í áhugaverðum samræðum við þetta fræðasvið og hefur margt til málanna að leggja þótt sú umræða fari fram löngu eftir hans dag. Í lokakafla ritgerðarinnar eru skrif Þórbergs tengd við samtímabókmenntir og sýnt fram á hvernig íslenskir rithöfundar sem skrifa skáldævisögur tengja sig gjarnan við Þórberg á einn eða annan hátt.

Um doktorsefnið

Soffía Auður Birgisdóttir er fædd 25. september 1959 í Reykjavík. Hún lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði og Cand.mag. prófi í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Þá lagði hún stund á framhaldsnám í almennri bókmenntafræði við University of South Carolina í Bandaríkjunum um þriggja ára skeið. Soffía Auður hefur kennt um árabil við Háskóla Íslands en undanfarin ár hefur hún starfað sem sérfræðingur við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Höfn. Soffía Auður er fjögurra barna móðir og gift Þorvarði Árnasyni náttúrufræðingi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012