
Afmælishátíðin verður haldin í Bratta við Stakkahlíð síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl kl. 17-19. Dagskráin verður með léttu sniði þar sem farið verður yfir sögu greinarinnar og nokkrir fyrrum og núverandi nemendur segja frá námi sínu og störfum.
Dagskrá
17:00-17:10 – Ólafur Páll Jónsson, prófessor og deildarforseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar: Setning
17:10-17:20 – Jón Vilberg Jónsson, nemi í uppeldis- og menntunarfræði: Sjónarhóll nemenda
17:20-17:30 – Inga Guðrún Kristjánsdóttir, MA í uppeldis- og menntunarfræði og MA í náms- og starfsráðgjöf: Kennarar sem fyrirmyndir og hvatning - Mikilvægi stuðnings við rannsóknir nema
17:30-17:40 – Eyrún María Rúnarsdóttir, aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið: Af mentorum, mannauði og meiriháttar menntun
17:40-17:50 – Sigríður Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SHJ ráðgjafar: Vegir liggja til allra átta
17:50-18:00 – Jóhanna Einarsdóttir, prófessor og forseti Menntavísindasvið: Málþingslok
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.
Allir velkomnir.