Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Þrengt að opnu framhaldsskólavali árin 2010–2012: Forsendur og saga málsins

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. apríl 2016 - 16:20 til 17:05
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
K-206
""

Námsbraut um kennslu í framhaldsskólum og Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs við Háskóla Íslands boða til opinna funda um rannsóknir á framhaldsskólastarfi. Málstofurnar verða haldnar í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Erindin eru að jafnaði um 20 mínútur og jafnlangur tími er ætlaður til umræðna. Erindin eru flutt á íslensku nema annað sé tekið fram.

Berglind Rós Magnúsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir yfirskriftinni: Þrengt að opnu framhaldsskólavali árin 2010–2012: Forsendur og saga málsins.

Opið skólaval er miðlægt hugtak innan markaðsvæddra menntakerfa og byggir á þeirri hugmyndafræði að menntun sé fyrst og fremst vara sem metin er út frá skiptigildi hennar innan þekkingarhagkerfisins. Hér á landi hafði opið val verið við lýði í framhaldsskólum frá 2006 en reglum var breytt fyrir skólaárin 2010–2012 þannig að 45% nýnema á fyrsta ári áttu að koma frá skilgreindu upptökusvæði skóla. Í erindinu verður sjónum beint að forsendum breytinganna, viðbrögðum og afdrifum málsins innan skólavettvangsins.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012