Clik here to view.

Bharath Sriraman, gistiprófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, stendur fyrir vinnustofu um skapandi stærðfræði fyrir kennara í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Bharath er prófessor í stærðfræði og stærðfræðimenntun við Háskólann í Montana. Hann hefur m.a. sérstakan áhuga á því hvernig listir og vísindi tengjast stærðfræðimenntun og hefur stundað rannsóknir á því sviði.
Á Norma ráðstefnunni 2011 var hann aðalfyrirlesari og talaði um norrænar rannsóknir í stærðfræðimenntun. Á námsstefnu Flatar sama ár sá hann ásamt fleirum um vinnustofu, undir heitinu Skapandi og klár, þar sem kennarar fengu tækifæri til að finna fyrir sköpunarkrafti sínum og ræða mikilvægi þess að þeir gefi nemendum tækifæri og frelsi til að skapa og njóta gáfna sinna.
Bharath hefur verið afkastamikill í bóka- og greinaskrifum (sjá lista) og er ritstjóri bókaraðar sem fjallar um bráðger börn og sköpun.