Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Café lingua - Stefnumót rómanskra tungumála

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. febrúar 2016 - 15:30
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Viltu kynnast einhverjum sem talar reiprennandi spænsku, frönsku eða ítölsku? Talar þú eitt af þessum tungumálum sem móðurmál og hefur áhuga á deila því með einhverjum sem er að reyna að ná tökum á því? Nemendur og kennarar í spænsku, frönsku og ítölsku við Háskóla Íslands bjóða alla áhugasama um þessi þrjú tungumál sem töluð eru víða um heiminn til tungumálastefnumóts. Kynnt verða tækifæri í námi í rómönskum tungumálum við Háskóla Íslands, auk þess sem listafólk stígur á stokk.  

Allir eru velkomnir!

Café Lingua – lifandi tungumál er tungumálavettvangur á vegum Borgarbókasafnsins.  Uppákoman er skipulögð í samstarfi við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, námsleið í íslensku sem annað mál, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Íslenskuþorpið við Háskóla Íslands.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012