Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Sigurverk heilans - Hvernig geta listir dýpkað samfélagslega umræðu um vísindi?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. febrúar 2016 - 13:30
Háskóli Íslands

Sigurverk heilans - Hvernig geta listir dýpkað samfélagslega umræðu um vísindi?

Siðfræðistofun efnir til pallborðsumræðna og listviðburðar laugardaginn 13. febrúar í Listasafni Reykjavíkur kl 13:30.

Í umræðunum fást, sérfræðingar á sviði taugaeflingar og félagsvísinda þau George Gaskell, prófessor í félagssálfræði við London School of Economics and Political Science, Judit Sándor, prófessor við stjónmálafræði- kynjafræði- og lögfræðideildir Central European University og Agnes Allasdóttir frá Toscana Life Sciences, við spurninguna „Hvernig geta listir dýpkað samfélagslega umræðu um vísindi líkt og taugaeflingu?“ Milli umræðna verða sýnd video-listaverk eftir Auði Önna Kristjánsdóttur, Fritz Hendrik Berndsen, og Minu Tomic og Gjörningaklúbbinn.

Umræðu- og fundarstjórar: Jóhannes Dagsson, aðjúkt við Listaháskóla Íslands og Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar

Viðburðurinn er liður í NERRI- rannsókninni (Taugaefling: Ábyrgar rannsóknir og nýsköpun).

Facebooksíða viðburðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012