Hvenær hefst þessi viðburður:
21. júní 2016 - 16:00

Á Jónsmessunni fljóta steinar upp úr tjörnum, álfar fara á kreik og Ferðafélag barnanna leggur land undir fót í fylgd Júlíönu Þóru Magnúsdóttur, doktorsnema í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Gengið verður upp að Helgufossi í Mosfellsdal og í leiðinni heimsækjum við álfabyggðina í Hrafnakletti/Helguhól, fræðumst um álfa og heiðrum þá með dansi og söng. Hist verður kl. 16 á einkabílum við skrifstofu Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6. Áætla er að gangan taki um 2-3 klukkustundir.
Gangan er hluti af verkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands, Með fróðleik í fararnesti, sem hófst á aldarafmæli skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í þessum áhugaverðu gönguferðum. Markmiðið með þeim er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskóla Íslands og Ferðafélagsins.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.