Hvenær hefst þessi viðburður:
21. janúar 2016 - 15:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
132

Fyrirlestraröð framúrskarandi vísindafólks - Framhaldsnámsprógramm Lífvísindaseturs Háskóla Íslands
Á þessu skólaári býður framhaldsnámsprógramm Lífvísindaseturs (GPMLS-BMC) upp á fyrirlestraröð þar sem þekktu vísindafólki í sameindalífvísindum er boðið að halda fyrirlestur um eigin rannsóknir.
Fimmtudaginn 21. janúar kl. 15:00 mun Dr. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fjalla um Genetics of Common Complex Traitsí fyrirlestrarsal 132 í Öskju.
Kaffiveitingar verða í boði frá kl. 14:30.
Allir eru velkomnir.