Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Menntun og fjölmenning

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. desember 2015 - 12:00 til 13:15
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
fundarsalur
skólatöskur
Menntun í fjölmenningarsamfélagi er viðfangsefni annars fundar í nýrri fundaröð Háskóla Íslands sem ber yfirskriftina Fræði og fjölmenning
 
Við þróun fjölmenningarsamfélags er mikilvægt að huga sérstaklega að börnum og ungu fólki. Á Íslandi hefur nú þegar skapast töluverð reynsla af skóla margbreytileikans og þekking með rannsóknum á því sviði menntavísinda. Á fundinum verður athygli einkum beint að börnum og ungmennum af erlendum uppruna í íslensku menntakerfi. 
 
Fundurinn verður haldinn á Alþjóðlega mannréttindadaginn, fimmtudaginn 10. desember nk., kl. 12.00 til 13.15 í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands og er öllum opinn.

Dagskrá

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, setur fundinn.
 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir frá nýrri fjölmenningarstefnu fyrir skóla- og frístundastarf, Heimurinn er hér, sem tók gildi í Reykjavík á síðasta ári. Stefnan tekur til alls lærdómsumhverfis barna og ungmenna með tilliti til fjölmenningar. Þar er haft að leiðarljósi að öll börn nái árangri í námi og leik, standi vel að vígi félagslega og fái tækifæri til að vera stolt af bakgrunni sínum og menningu.
 
Hanna Ragnarsdóttir, prófessor í fjölmenningarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, fjallar um hvers konar umgjörð íslensk menntastefna, lög og námskrár mynda fyrir fjölbreytta nemendahópa, einkum börn af erlendum uppruna. 
 
Kristrún Sigurjónsdóttir, deildarstjóri móttökudeildar Lækjarskóla í Hafnarfirði, fjallar um reynslu Lækjarskóla af því að taka á móti börnum af erlendum uppruna og hvernig sú reynsla hefur og mun nýtast við móttöku flóttabarna og barna hælisleitenda.
 
Að fundi loknum verður boðið upp á hressingu.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012