Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Heimspekispjall - fögnuður í tilefni af útkomu síðustu bókar Páls Skúlasonar, Merking og tilgangur

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. nóvember 2015 - 20:00
Nánari staðsetning: 
Hannesarholt
Háskóli Íslands

Heimspekispjall í Hannesarholti, 19. nóvember klukkan 20.00

Fimmtudagurinn 19. nóvember er UNESCO dagur heimspekinnar. Þann dag verður haldinn fögnuður í tilefni af útkomu síðustu bókar Páls Skúlasonar, Merking og tilgangur, sem hann lauk við skömmu fyrir andlát sitt í vor.

Björn Þorsteinsson, Salvör Nordal, Henry Alexander og Skúli Skúlason munu flytja stuttar hugleiðingar um þá heilsteyptu kenningu um veruleikann sem Páll setur fram í verkinu um stöðu okkar í heiminum og samspil merkingar og tilgangs.

Ævar Kjartansson mun einnig lesa upp úr verkinu.

Bókin verður til sölu á staðnum.

Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.

Boðið verður upp á léttan kvöldverð frá kl. 18.30. Borðapantanir í síma 511-1904.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012