
Föstudaginn 27. nóvember nk. kl. 13:00 fer fram doktorsvörn frá Uppeldis- og menntunarfræðideild við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þá ver Ingibjörg V. Kaldalóns ritgerð sína Stuðningur við sjálfræði nemenda í íslenskum grunnskólum (Autonomy support in Icelandic cumpulsory schools).
Um verkefnið
Stuðningur við sjálfræði nemenda í íslenskum grunnskólum
Markmið með rannsókninni er að varpa ljósi á stuðning við sjálfræði nemenda í skólastarfi, öðlast skilning á starfsháttum sem styðja við sjálfræði nemenda og þeim þáttum í skólastarfi sem hindra slíkan stuðning. Sjálfræði er mikilvægur þáttur velfarnaðar samkvæmt jákvæðri sálfræði og sjálfsákvörðunarkenningum sem mynda fræðilegan grunn rannsóknarinnar. Sjónum er beint að starfsháttum í 7.—10.bekk grunnskóla í 20 grunnskólum. Notaðar eru spurningalistakannanir, vettvangsathuganir og hálf-opin viðtöl við nemendur og kennara. Niðurstöður eru í meginatriðum að stuðningur við sjálfræði er víða lítill og ekki í samræmi við það sem Aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalög og alþjóðasamþykktir kveða á um. Á hinn bóginn er mikill munur milli skólanna á því hvernig stutt er við sjálfræði. Mikill munur reyndist bæði á kennslu- og starfsháttum og einnig á viðhorfum í skólum eftir því hversu ríkulega kennarar studdu við sjálfræði nemenda – sem endurspeglaðist í ólíkri skólamenningu og formgerð skólastarfsins. Rannsóknin staðfestir tengsl stuðnings við sjálfræði og velfarnaðar. Varpað er ljósi á ýmsa ytri þætti sem kennarar telja að hindri þá í því að styðja við sjálfræði nemenda svo sem kerfislegar kröfur, takmarkaðar bjargir og ósveigjanlegt skipulag. Hugmyndalegar hindranir sem tengdust námi og skólastarfi vógu þó þyngra. Við þurfum að efla þekkingu með kennnurum og nemendum á formgerð sem greiðir fyrir eflingu sjálfræðis nemenda. Skólamenning sem leggur megináherslu á fræðslu og getu nemenda heldur einnig aftur af breytingum og hindrar stuðning við sjálfræði. Fræðilegar niðurstöður ættu að vera mikilvægt framlag fyrir vettvanginn, gagnlegar fyrir starfandi kennara, skólastjórnendur og aðila í kennaramenntun.
Um doktorsefnið
Ingibjörg V. Kaldalóns fæddist árið 1968. Hún lauk BA-prófi í stjórnmála- og félagsfræði frá Félagsvísindadeild Háskóla Íslands árið 1993, meistaraprófi í aðferða- og félagsfræði frá sömu deild árið 1996 og er einnig alþjóðlega vottaður markþjálfi. Ingibjörg hefur starfað við rannsóknir og rannsóknarráðgjöf m.a. hjá Félagsvísindastofnun HÍ, Rannsóknastofnun KHÍ og Menntavísindastofnun HÍ og verið þátttakandi í nokkrum stórum samstarfsrannsóknum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún starfar nú við kennslu og rannsóknir á Menntavísindasviði. Einnig starfar hún sjálfstætt við ráðgjöf, kennslu og skólaþróunarverkefni sem snúa að starfsháttum í grunnskólum, lífsleikni og velfarnaði kennara og nemenda. Ingibjörg á þrjú börn þau Unni, Margréti Stellu og Stefán Snæ Kaldalóns.