
Árleg keppni FIRST LEGO League keppnin verður haldin laugardaginn 14. nóvember í Háskólabíói. Þemað í ár er Trash Trek - Úrgangur er auðlind.
Lögð er áhersla á að keppendur kynni sér hvernig megi endurnýta og endurnota sorpið í kringum okkur.
Út á hvað gengur keppnin?
Keppendur eru á aldrinum 10-16 ára. Í hverju liði eru hámark 10 keppendur og a.m.k. einn leiðbeinandi. Liðin keppa sín á milli við að leysa þrautir með forrituðum vélmennum. Auk þess eru liðin dæmd út frá rannsóknarverkefni, hönnun/forritun á vélmenni og liðsheild.
Öllum er velkomið að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni en auk hennar verður margt annað í boði. Krumma mun sýna Mindstorms-vélmenni, Sprengju-Kata verður með efnafræðitilraunir, Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður opin upp á gátt með sýnum skemmtilegu tækjum og tólum og þá verður rafknúinn kappakstursbíll Team Spark til sýnis. Auk þess mun Sorpa verða með kynningarbás og almenningi gefst kostur spreyta sig á vindmyllusmíð.
Nánari upplýsingar á www.firstlego.is