Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Samvinna vísinda og lista - Málþing

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. nóvember 2015 - 17:00 til 19:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Svarti kassin á neðri hæð
Konnect á Kolstöðum 2015

KONNECT er norrænt verkefni sem tengir listnema og vísindamenn á sviði umhverfisfræða í leit að leiðum til þess að vekja athygli á aðsteðjandi umhverfisógnum.

Í KONNECT vinna vísindamenn, listamenn og nemendur saman í 4 daga vinnustofum sem skipulagðar eru af Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og listaháskólum á öllum Norðurlöndunum. Vinnan skilar sér í safni hugmynda að listaverkum, en úrval þeirra fær síðan framleiðslustyrk.

Fyrsta vinnustofan var haldin að Kolstöðum í Borgarfirði í september síðastliðnum og tókst með afbrigðum vel. Á vinnustofunni í Norræna húsinu  munu nemendur kynna tillögur sínar að listaverkum. Dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir dósent við sálfræðideild HÍ mun leiða umræður um tillögur nemendanna og hvernig hafa má áhrif á mannlega hegðun.

Málstofan fer fram á ensku vegna erlendra þátttakenda og er opin öllum.
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012