Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Konur á ráðherrastóli - Málþing

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. nóvember 2015 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands
Háskóli Íslands

Föstudaginn 20. nóvember verður efnt til málþings um reynslu íslenskra kvenna sem gegnt hafa embætti ráðherra, í sögulegu og alþjóðlegu samhengi.

Á málþinginu sem Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands (RIKK) skipuleggur í samstarfi við Jafnréttisstofu og Háskólann á Akureyri. Jóhanna Sigurðardóttir fv. forsætisráðherra opnar málþingið með ávarpi, fyrrum kvenráðherrar fjalla um ráðherratíð sína og fræðimenn nálgast efnið frá kynjapólitískum sjónarhóli.
Kona varð í fyrsta sinn ráðherra á Íslandi árið 1970 þegar Auður Auðuns tók við embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í ríkisstjórn Jóhanns Hafstein. Þrettán árum síðar, 1983, varð Ragnhildur Helgadóttir önnur konan til að gegna ráðherraembætti og árið 1987 er Jóhanna Sigurðardóttir þriðja konan sem brýtur einokun karla á vettvangi framkvæmdavaldsins. Á málþinginu verður meðal annars spurt: Hvað með allar hinar konurnar sem ekki voru ráðherrar? Þær 26 konur sem gegnt hafa ráðherraembætti rufu hið svokallaða glerþak, sem er myndlíking fyrir þær hindranir sem standa í vegi fyrir framgangi kvenna á stjórnmálasviðinu og víðar, og komust í áhrifastöðu, en af hverju eru þær ekki fleiri?

Dagskrá:
• 12.00-12.10 Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur fv. forsætisráðherra
• 12.10-12.20 Sigrún Stefánsdóttir og Edda Jónsdóttir segja frá tilurð bókarinnar Frú ráðherra
• 12.20-12.30 Rannveig Guðmundsdóttir, fv. ráðherra
• 12.30-12.40 Katrín Jakobsdóttir, fv. ráðherra
• 12.40-13.00 Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur: „Þykkt lag af körlum og stöku kona“
• 13.00-13.45 Pallborðsumræður. Þátttakendur: Ingibjörg Pálmadóttir, fv. ráðherra, Siv Friðleifsdóttir, fv. ráðherra, Auður Styrkársdóttir, forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands og Rósa Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í velferðarráðuneytinu

Fundarstjóri er Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði.

Málþingið er haldið í tilefni útgáfu bókarinnar Frú ráðherra. Sögur kvenna á ráðherrastóli eftir þær Sigrúnu Stefánsdóttur, forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri og Eddu Jónsdóttur. Þar segja tuttugu íslenskar konur sem setið hafa á ráðherrastóli sögu sína á opinskáan hátt en bókin kemur út í til¬efni af 100 ára af¬mæli kosningaréttar ís¬lenskra kvenna. Í kynningu Háskólaútgáfunnar á bókinni segir: „Ráðherrarnir tuttugu, sem eru fulltrúar þriggja kynslóða kvenna, veita lesendum inn¬sýn í líf sitt og deila reynslu sinni af þátt¬töku í íslenskum stjórnmálum. Þær greina á einlægan og opinskáan hátt frá uppvexti sínum og mótunarárum, lífssýn og viðhorfum til leiðtogahlutverksins og segja frá ýmsu sem ekki hefur komið fram opinberlega áður.“

Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis og viðburðurinn er á Facebook.


 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012