Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í efnafræði: Manuel Plasencia Gutiérrez

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. nóvember 2015 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 132
Manuel Plasencia Gutierrez

Föstudaginn 20. nóvember ver Manuel Plasencia Gutiérrez doktorsritgerð sína við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Leit að söðulpunktum og lægstu lágmörkum (Searching for saddle points and global minima).

Andmælendur eru Tejs Vegge, prófessor við Tækniháskóla Danmerkur (DTU), og dr. Halldór Pálsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.

Leiðbeinandi var dr. Hannes Jónsson, prófessor í eðlisefnafræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Egill Skúlason, dósent í efnafræði við Raunvísindadeild, og dr. Andreas Pedersen, sérfræðingur við ETH í Zürich í Sviss.

Dr. Hafliði P. Gíslason, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni.

Ágrip af rannsókn

Í mörgum tilfellum er mikilvægt að finna fyrsta stigs söðulpunkta á margvíðum yfirborðum. Til dæmis eru söðulpunktar notaðir við mat á gangi og hraða fátíðra atburða svo sem varmadrifinna sveimstökkva og efnahvarfa í atómkerfum. Ýmsar endurbætur á aðferð sem byggist á því að nota lægsta titringshátt til að rata á fyrsta stigs söðulpunkt án þess að byggja upp Hessian-fylkið hafa verið gerðar og afköstin mæld á þekktu prófdæmi. Endurbæturnar á aðferðinni fækkuðu um helming þeim útreikningum á fallinu sem þurfti til að ljúka prófdæminu. Aðferð til að finna lægsta lágmark á falli var einnig þróuð, GOUST, og prófuð á dæmum sem notuð hafa verið til að meta genareiknirit. GOUST reyndist vera öflugri en algeng genareiknirit sérstaklega þegar margar  breytistærðir eru til staðar og yfirborðin flókin. Þar að auki var GOUST notað ásamt iTOUGH-reikningum til að þróa líkan af jarðvarmasvæðinu við Laugarnes.

Um doktorsefnið

Manuel Plasencia Gutierrez fæddist á Kúbu 1978 og hefur stundað doktorsnám við Háskóla Íslands frá 2009. Hann útskrifaðist sem kjarnorkuverkfræðingur og lauk síðar meistaragráðu í kjarnorkuveraverkfræði við INSTEC-háskólann í Havana. Síðar flutti Manuel til Íslands. Hann er giftur Rögnu Björk Guðbrandsdóttur, og eiga þau tvær dætur. Í frístundum lærir hann efnafræði víngerðar.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012