Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2015

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. nóvember 2015 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðarsalur
Háskóli Íslands

Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands verða veitt í 17. sinn fimmtudaginn 19. nóvember 2015 kl. 16.00.

Samkeppnin um hagnýtingarverðlaunin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Árnason|Faktor og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Leitað var eftir hagnýtanlegum hugmyndum í haust frá starfsmönnum og nemendum Háskóla Íslands og tengdum stofnunum. Reynslan frá upphafi samkeppninnar hefur sýnt að fleira má hagnýta en tæknilegar lausnir í iðnaði.

Veitt verða peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin en við val á hugmynd skoðar dómnefndin:

i)Leiðir við hagnýtingu og hversu fljótt er unnt að hagnýta uppfinningu
ii)Hvort hagnýting styðji við stefnu og starfsemi Háskóla Íslands
iii)Rannsóknavinnu að baki verkefni/hugmynd
iv)Nýnæmi og frumleika
v)Ávinning fyrir samfélagið
vi)Hvernig verðlaunafé mun nýtast við hagnýtingu verkefnis/hugmyndar

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012